Skref1
- Hrærið mjólk og vatn saman í skál.
- Setjið þurrger saman við.
- Hrærið þar til freyðir.
- Látið þá sykur, salt, 1 egg og brætt smjör (passa að það sé ekki of heitt) út í.
- Hrærið.
Skref2
- Setjið hveitið saman við smátt og smátt.
- Hrærið og hnoðið þar til þið hafið óklístrað deig.
- Þið gætuð þurft minna eða meira hveiti.
- Hnoðið í stutta stund.
- Leggið deigið aftur í skálina og breiðið hreint þvottastykki yfir og látið hefast á hlýjum stað í 40 mínútur.
Skref3
- Skiptið deiginu í 22 bita og mótið bollur.
- Látið hefast í 20 mínútur.
- Penslið með þeyttu eggi og bakið í 15-20 mínútur við 200°.
Bollukrans
- Fyrir sérstök tilefni er gaman að raða bollunum upp í fallegan krans.
- Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír og setjið hringlaga eldfast mót í miðjuna.
- Gott er að mótið sé um 8-10 cm í þvermál.
- Raðið átta bollum í kringum mótið.
- Passið að þær snerti hvorki mótið né hver aðra.
- Raðið restinni af bollunum fyrir aftan þessar átta og gætið þess að þær komi ekki við hver aðra.
- Látið hefast í 20 mínútur.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir