Aðferð
- Ofnhiti: 175 °C
- Blandið saman í skál hveiti, haframjöli, hörfræjum, sólblómafræjum, graskersfræjum, salti og lyftidufti.
- Hrærið saman hunangi, AB-mjólk og rifnu epli í annarri skál.
- Hellið því saman við hveiti- og fræblönduna. Hrærið saman. Deigið verður nokkuð klístrað.
- Tyllið bökunarpappír í brauðform og hellið deiginu í formið.
- Stráið graskersfræjum yfir.
- Bakið neðarlega í ofninum í um 50-55 mínútur.
- Verði ykkur að góðu og njótið vel.
Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal