Skref1
- Bræðið smjörið og súkkulaðið saman í potti yfir meðalháum hita og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað alveg.
- Bætið kaffinu saman við og hrærið.
- Látið súkkulaðið kólna á meðan þið undirbúið rest.
Skref2
- Hrærið eggjahvítur og sykur saman þar til blandan er orðin stíf líkt og marengs.
- Blandið súkkulaðinu varlega saman við og hrærið með sleif þar til allt hefur blandast vel saman.
Skref3
- Sprautið súkkulaðimúsinni jafnt í glösin og setjið inn í ísskáp í minnst 2 klst.
- Grófsaxið Oreo kexkökurnar og setjið ofan á músina, þeytið rjóma og sprautið honum yfir Oreo kexið.
- Skreytið með restinni af Oreo kexinu.
- Geymist í kæli þar til borið er fram.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir