Vatnsdeigsbollur
- Sjóðið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið hefur bráðnað.
- Blandið hveitinu og saltinu saman við og hrærið rösklega þar til deigið sleppir pottinum og myndar kúlu úr deiginu.
- Takið pottinn af eldavélinni, setjið deigið í aðra skál og látið kólna örlítið.
- Þegar deigið hefur náð stofuhita er eggjunum bætt saman við, einu í senn og hrært varlega á milli með hrærivél.
- Setjið smjörpappír á ofnplötu.
- Setjið deigið í sprautupoka og sprautið því á plötuna með jöfnu millibili.
- Bakið við 200 gráðu hita í 20 mínútur, passa þarf að opna ofninn alls ekki fyrstu 15 mínúturnar af bakstirnum.
- Látið bollurnar kólna alveg áður en sett er á þær.
- Hitinn á bakaraofnum er mjög mismunandi, ef ykkur finnst bollurnar vera að brúnast heldur fljótt er gott að lækka hitann í 170 gráður eftir 5 mínútur.
Fylling
- Þeytið rjómann þar til hann verður stífur og stendur, passið þó að þeyta hann ekki of mikið.
- Þeytið rjómaostinn, sykur, salt og vanilludropa saman í annarri skál þar til blandan verður ljós og létt.
- Blandið rjómanum varlega saman við með sleif þar til allt hefur blandast vel saman.
- Skerið bollurnar, setjið jarðarberjasultu í botninn, setjið rjómaostakrem á milli og lokið bollunni.
- Skreytið bolluna með flórsykri.
- Fallegt er að sprauta rjómaostakreminu á bolluna t.d. með sprautustút 1M.
- Geymið í kæli þar til bollurnar eru bornar fram.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir