Aðferð:
Rífið kjúklinginn niður. Setjið kjúklinginn og laukinn á meðalheita pönnu og hitið. Setjið saxaða tómatana, tómatpúrruna og niðursoðnu tómatana saman við. kryddið með salti og pipar.
Látið malla saman í sirka 6-8 mínútur við vægan hita, bætið í steinselju og basilikum og að lokum rjómaostinum, gætið að sjóða ekki eftir að rjómaostinum er bætt í. Raðið í form á eftirfarandi hátt: 1 dós kotasæla, lasagneplötur, kjúklingablanda, 100 gr gratínostur, lasagneplötur, 1 dós kotasæla, kjúklingablanda, lasagneplötur, kjúklingablanda og loks restin af gratínostinum. Bakið við 170°C í 35-40 mínútur.