Skref1
- Eggjahvíturnar eru þeyttar og sykrinum blandað saman við smám saman þar til blandan er stífþeytt.
- Lyftidufti er blandað varlega saman við í restina.
Skref2
- 1/3 hluti marengsblöndunnar er settur í aðra skál og lituð með grænum matarlit.
- Hinn hlutinn er litaður með gulum matarlit.
Skref3
- Ananasmót er teiknað á smjörpappír og gulu marengsblöndunni sprautað með frönskum sprautustút á pappírinn.
- Græna marengsblandan er sett í sprautupoka og henni sprautað á smjörpappírinn með rúnuðum sprautstúti eða engum stút.
- Marengsbotnarnir eru bakaðir við 130°C hita í 1 ½ klst.
Skref4
- Rjóminn er þeyttur, eplin skorin í litla bita og ananasinn skorinn í bita, sigtaður og blandaður saman við rjómann.
- Rjómablandan er sett yfir marengsbotninn og kókósbollur kramdar yfir. Efri botninn er síðan settur yfir.
Höfundur: Hjördís Dögg Grímarsdóttir