Skref1
- Setjið hafrakex í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er orðið fínmalað.
- Bræðið smjör og hellið saman við kexið og hrærið vel saman.
- Hellið kexblöndunni í ferkantað eða hringlaga form og þrýstið niður.
Skref2
- Þeytið rjómann og hrærið saman við skyrið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Leysið upp matarlímið samkvæmt leiðbeiningum utan á pakkanum og hellið því saman við skyrblönduna og hrærið vel.
- Setjið því næst 100 g af bláberjum saman við skyrblönduna og hrærið varlega með sleif.
- Hellið skyrblöndunni yfir kexbotninn og sléttið út með sleif og kælið í 2 klukkustundir eða þar til kakan hefur náð að stífna.
Skref3
- Skreytið með restinni af bláberjunum og brómberjum og þrýstið þeim lítillega niður.
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og hrærið þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg, passið að súkkulaðið sé ekki mjög heitt.
- Dreifið súkkulaðinu óreglulega yfir berin.
- Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir