Skref1
- Hrærið smjör þar til það verður ljóst og létt.
- Bætið sykri og púðursykri saman við og hrærið vel.
- Setjið egg, vanilludropa og piparmyntudropa saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Gott er að skafa innan úr hliðum skálarinnar hér.
- Blandið hveiti, kakói, kaffi, matarsóda og salti saman í skál og hrærið.
- Setjið hveitiblönduna saman við smátt og smátt í einu og hrærið þar til allt hefur náð að blandast vel saman, passið ykkur þó að hræra ekki of mikið.
- Grófsaxið súkkulaði og blandið saman við.
- Setjið deigið í skál með plastfilmu yfir og kælið í 2 klst. eða yfir nótt.
Skref2
- Setjið bökunarpappír á tvær bökunarplötur.
- Myndið jafnstórar kúlur úr deiginu og raðið með jöfnu millibili á plöturnar.
- Þrýstið örlítið niður á hverja köku með fingrunum.
- Bakið í 10 mínútur við 170 gráðu hita.
- Kælið kökurnar alveg áður en þið takið þær af bökunarplötunni þar sem þær þurfa að jafna sig áður en þið dýfið þeim ofan í súkkulaðið.
Skref3
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða lágum hita og dýfið helmingnum af hverri köku ofan í súkkulaðið.
- Leggið kökuna á bökunarplötuna.
- Brytjið candy cane piparmyntustafina niður. Gott er að nota mortel eða eitthvað sem getur barið stafina í fíngerða bita.
- Setjið piparmyntustafina ofan á flötinn með súkkulaðinu og látið súkkulaðið storkna.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir