Aðferð:
- Hitið smjör á pönnu, steikið brauðsneiðarnar og snúið þeim við.
- Setjið handfylli af osti yfir hverja brauðsneið og tvær skinkusneiðar.
- Leggið brauðsneiðar saman og eldið þar til samlokurnar eru gullinbrúnar. Best að nota nóg af smjöri!
- Leggið samlokurnar á pappírsklædda ofnplötu og útbúið sósuna.
- Setjið sýrða rjómann, nýrifið múskat, salt og pipar í skál og hrærið.
- Bætið því næst 100 gr af sitthvorum ostinum út í og hrærið áfram.
- Smyrjið ostasósunni yfir hverja brauðsneið og sáldrið svolítið meira af osti yfir.
- Grillið í ofni við 200°C í örfáar mínútur eða þar til osturinn er orðinn gullinbrún.
- Berið strax með fram með góðu salati.
Höfundur: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir