Menu
Einfaldasta skyrkaka heims

Einfaldasta skyrkaka heims

Mér var sagt frá þessari einföldu hugmynd um daginn og gat ekki hætt að hugsa um hana fyrr en ég væri búin að prófa. Púff skyrkaka er mögulega einfaldasti eftirréttur heims og tekur örfáar mínútur að útbúa, síðan er hann alveg dúndurgóður! 

Innihald

4 skammtar
dökkt Hraun (mulið)
Ísey skyr Púff með saltkaramellu
rjómi frá Gott í matinn, þeyttur

Aðferð

  • Setjið kúfaða matskeið af muldu Hrauni í botninn á glasi.
  • Næst fer ein dós af Ísey Púff skyri yfir kexið og að lokum má skipta þeytta rjómanum á milli glasanna og toppa með smá meira af muldu Hrauni.
  • Ef þið viljið gera réttinn enn meira djúsi má setja saxað dökkt súkkulaði til viðbótar á toppinn eða góða karamellusósu.
Aðferð

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir