Skerið smjördeigið í tvennt eftir endilöngu svo úr því myndist tvær ílangar ræmur.
Skref2
Setjið smjör, kanil og sykur í pott yfir meðal háan hita þar til smjörið hefur bráðnað alveg.
Skref3
Flysjið eplin og skerið þau smátt niður og setjið þau saman við, hækkið hitann og látið eplin krauma í rúmlega 5 mínútur í pottinum, hrærið allan tímann svo blandan brenni ekki.
Takið pottinn af hellunni og kælið í 5 mínútur.
Skref4
Bætið hveiti og vanillusykri saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Skerið pekanhentu gróflega niður og setjið saman við.
Skref5
Setjið eplablönduna ofan á aðra smjördeigsræmuna og dreifið úr henni jafnt og þétt.
Setjið hina ræmuna ofan á og festið hliðarnar saman með gaffli.
Penslið eggjahvítu yfir lengjuna og stráið kanilsykri yfir, gott er að skera aðeins ofan í deigið eins og sjá má á mynd.
Bakið í 15-20 mínútur eða þar til smjördeigið er orðið fallega gullinbrúnt.