Skref1
- Saxið niður lauk og hvítlauk og steikið upp úr vel af olíu og karrí þar til þeir fara að mýkjast.
Skref2
- Skerið gulrætur og papriku í strimla og bætið út í pottinn, kryddið með salti og pipar.
Skref3
- Þegar grænmetið er tekið að mýkjast er kókosmjólk, chili sósu, tómatpúrru, vatni og rjóma hellt saman við, blandað vel og leyft að malla á meðan fiskurinn er skorinn niður.
- Hér er gott að krydda súpuna til með ceyenne pipar, fiskikryddi og krafti.
Skref4
- Þorskur og lax er skorinn í teninga og rækjurnar skolaðar.
- Hægt er að hafa aðeins hefðbundnar rækjur en einnig er gott að blanda með smá af risarækju.
Skref5
- Þegar súpan hefur fengið að malla í 20-30 mínútur er hún hituð að suðu og fiskurinn (og risarækjurnar ef þið notið slíkar) settur saman við í 5-7 mínútur (eftir stærð bitanna).
- Að lokum er minni rækjunum bætt saman við, suðunni leyft að koma upp að nýju og þá er súpan klár!
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir