Skref1
- Ofn hitaður í 170 gráður með blæstri, annars 180 gráður.
Skref2
- Laukur og hvítlaukur steiktur upp úr smjörinu við frekar vægan hita þar til mýkist, saltað og piprað og teningurinn mulinn yfir.
- Hitinn hækkaður aðeins og spínatinu bætt á pönnuna.
- Steikið spínatið þar til það hefur linast.
- Takið pönnuna af hitanum og bætið kotasælu, parmesan og sýrðum rjóma saman við. Kryddið með múskati, salti og pipar eftir smekk.
Skref3
- Setjið smá tómatmauk neðst í eldfast mót.
- Svo koma lasanjaplötur, spínatblanda, tómatamauk. Endurtakið þetta þrisvar, endið á spínatblöndu og tómatamauki.
- Stráið osti yfir allt saman og bakið í 30 mínútur eða þar til lasanjaplöturnar eru eldaðar í gegn.
- Gott er að láta lasanjað standa í 10 mínútur áður en það er borið fram.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir