Skref1
- Byrjið á balsamikgljáanum.
- Setjið edik og sykur í pott, hleypið suðunni upp, lækkið hitann og leyfið að malla þar til edikið hefur þykknað, í um 10 mínútur. Slökkvið þá undir.
Skref2
Skref3
- Skerið brauðið í tvennt eftir endilöngu þannig að þið endið með tvær stórar og flatar sneiðar. Penslið brauðið með dálítilli ólífuolíu og stingið brauðinu inn í ofn í 5 mínútur.
- Takið út, nuddið með skornu hvítlauksrifinu og raðið ostinum ofan á, kryddið með salti og pipar.
- Setjið aftur inn í ofn í um 8-10 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og aðeins farinn að taka lit. Getið sett grillið á undir lokin.
- Takið úr ofninum og raðið tómatsneiðunum yfir.
- Stráið basillaufunum yfir og hellið að lokum balsamikgljáanum yfir.
- Skerið í mjóar sneiðar og berið fram volgt.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir