Hamborgarhryggur
- Hryggurinn er soðinn rólega í ca. 60 mínútur, gott er að nota kjöthitamæli og sjóða hrygginn í 65°C í kjarna.
- Færið hrygginn í ofnskúffu eða eldfast mót.
- Bræðið síðan saman á pönnu smjör, púðursykur og sinnep, þá er safa af ananas hellt á pönnuna og látið sjóða í 2 mínútur.
- Setjið gljáann og ananashringi á hrygginn og bakið við 180°C í 20 mínútur þar til hann hefur náð 72°C í kjarna.
- Nokkrum sinnum er gljái tekinn upp úr fatinu með skeið og hellt yfir hrygginn meðan á bakstri stendur yfir.
Maltsósa
- Vatn, sinnep, kjötkraftur, malt og púðursykur er sett í pott og fengin er upp suða.
- Þykkt með maizena, sem búið að blanda/hrista saman með smá vatni svo leysist upp.
- Þá er rjóma bætt í og smakkað til með salti og pipar.
- Hvítvínsediki bætt í sósuna að lokum.
Höfundur: Ungkokkar, Klúbbur matreiðslumeistara