Menu
Græn skyrskál með avocado, appelsínu og spínati

Græn skyrskál með avocado, appelsínu og spínati

Hvernig væri að byrja daginn, nú eða enda hann, á ljúffengri skyrskál með avocado, appelsínu og spínati?

Innihald

1 skammtur

Skyrskál

1 stk. Ísey skyr með vanillubragði (170 g)
1 stk. avocado
1 stk. appelsína
1 lúka spínat
10 stk. myntulauf
klakar

Toppur

múslí, kókosflögur og myntulauf

Aðferð

  • Blandið innihaldsefnum saman í blandara og hellið í skál.
  • Dreifið múslí, kókosflögum og myntulaufum yfir og njótið.

Höfundur: Íris Kjartansdóttir Blöndahl