Fullkominn réttur í grillveisluna eða hvaða veislu sem er. Einstaklega fljótlegur en mikill “vá-faktor” sem fylgir. Það er upplagt að velja þá osta sem manni þykja bestir. Ég mæli með að nota einn bragðmikinn ost eins og Tind, Óðals eða sterkan Gouda, einn mildari hvítmygluost eins og Gullost sem er í uppáhaldi hjá mér og einn blámygluost, bláan Kastala eða gráðaost fyrir þá sem vilja fara alla leið. Fullkomin blanda!
tilbúinn stór pizzabotn | |
ólífuolía | |
• | salt og pipar |
• | þrjár tegundir af ostum, t.d. Óðals Tindur, Gullostur og Blár kastali |
sneiðar af parmaskinku | |
• | fersk basílika |
• | chillisulta |
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir