Skref1
- Hitið ofninn í 180 gráður.
- Setjið hveiti, salt og matarsóda saman í skál og setjið til hliðar.
- Setjið brætt kælt smjör, hnetusmjör, púðursykur og sykur saman í skál og hrærið vel saman.
- Bætið eggi og eggjarauðu saman við ásamt vanilludropum og hrærið.
- Bætið hveitiblöndunni saman við smátt og smátt í einu og hrærið.
Skref2
- Hakkið saltkringlurnar gróflega annað hvort í matvinnsluvél eða berjið þær gróflega í poka, passið að hakka þær ekki of mikið.
- Saxið súkkulaðið gróflega niður eða finnið til súkkulaðidropana og bætið þeim saman við ásamt saltkringlunum og hrærið þar til allt hefur náð að blandast saman.
- Hér gæti þurft að nota hendurnar til þess að allt festist vel saman.
Skref3
- Myndið litla bolta úr deiginu og raðið þeim með jöfnu millibili á bökunarplötu með smjörpappír og bakið í 8-10 mínútur.
- Kælið kökurnar aðeins áður en þið takið þær af plötunni.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir