Skref1
- Byrjið á botninum.
- Blandið saman muldu Oreo, salti, vanillusykri og bræddu smjöri.
- Klæðið botn (og hliðar ef vill) á 20-22 cm springformi með bökunarpappír og þjappið blöndunni á botninn og aðeins upp hliðarnar.
- Setjið í kæli á meðan kakan sjálf er útbúin.
Skref2
- Leggið gelatínblöð í kalt vatn í um 10 mínútur, kreistið þá vatnið úr og setjið í sjóðandi vatn (60 ml).
- Hrærið vel saman og tryggið að blandan sé uppleyst og leyfið því næst að ná stofuhita.
Skref3
- Þeytið rjómann og geymið.
- Þeytið því næst saman rjómaost, sykur og vanillusykur þar til létt og ljóst.
- Hellið gelatínblöndunni saman við rjómaostablöndunni þegar hún hefur kólnað niður og vefjið síðan rjómanum saman við með sleikju.
Skref4
- Útbúið ganaché.
- Hitið rjómann að suðu og hellið yfir smátt saxað súkkulaðið, leyfið að standa í 2 mínútur og hrærið svo saman.
- Leyfið að kólna aðeins þar til það fer að þykkna og setjið þá í sprautupoka/klippið lítið gat á zip lock poka til að sprauta köngulóarvefinn á þegar búið er að setja kökuna saman.
Skref5
- Skiptið ostakökublöndunni í tvo hluta og hrærið Mars bitunum saman við annan hlutann.
- Hellið fyrst hlutanum með Mars bitunum á botninn og því næst hvíta hlutanum og sléttið vel úr í forminu.
- Sprautið ganaché á miðjuna og svo í hringi með um það bil 1,5 cm á milli. Dragið þá prjón í gegn frá miðjunni og myndið þannig köngulóarvef.
Skref6
- Kælið í að minnsta kosti 4 klst. eða yfir nótt og losið þá úr forminu og færið yfir á disk.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir