Vefjið litlum Dala Hrings bitum í tilbúið smjördeig.
Bakið á 200 gráðum í 20 mínútur.
Það er gaman að gera nokkrar útfærslur. Þið getið sett rifsberjahlaup og pekanhnetur í nokkra bita og inn í ofn en aðra er gott að baka einungis með ostinum og skella svo 70% súkkulaðibitum ofan á þegar þeir koma sjóðandi heitir úr ofninum.