Skref1
- Skerið jarðarberin gróflega niður og setjið í pott ásamt sykri og sítrónusafa.
- Látið suðu koma upp, lækkið hitann og látið sírópið malla í 15-20 mínútur eða þar til það hefur þykknað.
Skref2
- Hrærið reglulega í pottinum.
- Sírópið þykknar þegar það er látið standa, gott er að bæta smá vatni saman við og hita í skamma stund til þess að þynna það út aftur.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir