Skref1
- Hreinsið grænu blöðin af berjunum og skolið þau vel.
- Skerið hvert ber í fernt og setjið þau í skál ásamt flórsykrinum og áfenginu eða hlynsírópinu.
- Setjið skálina í kæli.
Skref2
- Hrærið grísku jógúrtina saman við þeyttan rjómann.
Skref3
- Myljið marensbotninn saman við og bætið að lokum við ¾ af berjunum ásamt safanum.
- Hrærið lauslega saman.
Skref4
- Setjið eftirréttinn í eina stóra skál eða skiptið honum í 6–8 glös.
- Skreytið með afganginum af berjunum.
- Berið strax fram.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir