Menu
Jóla Púff desert

Jóla Púff desert

Fljótlegur hátíðareftirréttur eða sparilegur morgunmatur sem smakkast einstaklega vel. Hér má líka nota sykurlausa karamellusósu og eingöngu granóla í botninn.

Innihald

2 skammtar
Ísey skyr Púff með eplum og kanil
piparkökur
rjómi frá Gott í matinn
granóla með eplum, kanil, pekanhnetum og kókos
karamellusósa

Skref1

  • Myljið piparkökurnar gróflega niður og setjið í botninn á glasi eða skál.
  • Setjið eina dós af Ísey skyr Púff með eplum og kanil í hvora skál fyrir sig.

Skref2

  • Þeytið rjóma og sprautið honum fallega yfir skyrið, setjið granóla yfir rjómann ásamt karamellusósu.
  • Best er að bera réttinn fram strax svo að piparkökurnar haldist stökkar. Þó er í lagi að gera hann 2-3 klst. áður en hann er borinn fram ef geymdur er í kæli.
  • Fyrir þau sem ekki vilja nota piparkökur er sett 1-2 msk. af granóla í botninn í staðinn.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir