Skref1
- Hitið ofninn í 180 gráðu hita og setjið smjörpappír á bökunarplötur.
- Hrærið smjör, púðursykur og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
- Bætið eggjum saman við einu í senn og hrærið á milli ásamt vanilludropum og sírópi.
- Setjið hveiti, kanil, matarsóda, salt og múskat í skál og blandið saman. Blandið því saman við ásamt höfrum og hrærið þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
- Grófsaxið súkkulaði og setjið saman við, hrærið léttilega þannig að súkkulaðið nái að blandast deiginu vel.
Skref2
- Myndið jafnstórar kúlur úr deiginu og raðið með jöfnu millibili á bökunarplötuna. Gott er að nota kökuskeið sem flýtir bæði fyrir og gerir allar kökurnar jafnar í stærð.
- Bakið í 10- 12 mínútur við 180°C.
- Látið kökurnar kólna í rúmlega 10 mínútur áður en þið takið þær af bökunarplötunni.
- Fyrir ykkur sem viljið meira súkkulaði er hægt að bræða auka súkkulaði og skreyta kökurnar.
- Geymið í kökuboxi eða öðru lokuðu íláti svo að kökurnar haldist góðar.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir