Lagkaka
- Þeytið smjör og sykur mjög vel saman. Bætið eggjunum saman við, einu og einu.
- Blandið hveiti, kanil, matarsóda, kakó og negul saman við ásamt kókómjólk og vanilludropum.
- Smyrjið deiginu á fjórar bökunarplötur, klæddar bökunarpappír. Gott er að vigta deigið sem fer á hverja plötu svo það sé jafnt á öllum plötunum.
- Bakið við 175° C í um 15-18 mínútur. Það þarf að passa að kökurnar bakist ekki of mikið.
Smjörkrem
- Blandið öllum hráefnum saman í hrærivélaskál og þeytið vel saman.
- Ef ætlunin er að gera hefðbundna lagköku er smjörkremið sett á milli botnanna. Kakan er þá kæld og síðan skorin niður.
- Til að gera kökuna í laginu eins og jólatré þá er smjörkreminu smurt á milli tveggja botna. Kakan þá kæld og síðan skorin niður í þríhyrninga. Hver þríhyrningur er skreyttur með smjörkremi sem litað er með grænum matarlit. Jólatrén eru skreytt með kökuskrautsperlum.
- Til að búa til lagköku með bingókúlusósu er smjörkreminu smurt á milli tveggja botna. Kakan kæld og síðan skorin í ferninga (gott að mæla með málbandi þegar kakan er skorin til að kökurnar verði jafn stórar). Bingókúlusósunni er hellt yfir hvern ferning og t.d. nammi sett ofan á hverja köku til að skreyta.
Bingókúlusósa
- Setjið allt í skál yfir vatnsbaði. Hitið þar til allt hefur bráðnað.
Höfundur: Hjördís Dögg Grímarsdóttir