Svampbotn
- Hitið ofninn í 170 gráðu hita með undir- og yfirhita.
- Setjið smjörpappír í kringlótt smelluform um, 22 cm að stærð.
- Þeytið egg og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
- Sigtið kartöflumjöl og hveiti í skál og blandið saman ásamt lyftiduftinu.
- Blandið hveitiblöndunni saman við eggjablönduna með sleif og hrærið varlega þar til allt hefur blandast vel saman.
- Bakið í rúmlega 30 mínútur.
- Kælið botninn alveg áður en þið setjið á hann.
Marengsbotn
- Setjið smjörpappír á ofnplötu og setjið til hliðar.
- Þeytið eggjahvíturnar og blandið sykrinum varlega saman við.
- Þeytið þar til blandan er orðin stíf og stendur.
- Myndið hring sem er jafn stór og formið sem svampbotninn er bakaður í, eða setjið marengsinn í smelluform.
- Bakið í 50 mín. við 150 gráður, eða þar til marengsinn er alveg þurr viðkomu.
- Kælið botninn áður en þið setjið kökuna saman.
Fylling
- Setjið svampbotninn á kökudisk og smyrjið hann með Nutella.
- Skerið kókósbollurnar í sneiðar og raðið þeim með jöfnu millibili yfir botninn
- Þeytið rjómann, en passið að stífþeyta hann ekki.
- Skerið jarðarberin gróflega niður ásamt Oreo kexkökunum og blandið saman við rjómann.
- Setjið rjómann á kökuna.
- Setjið marengsbotninn ofan á og þrýstið honum varlega niður.
Toppur
- Þeytið rjómann en passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið.
- Blandið kakói saman við og hrærið með sleif þar til allt hefur blandast vel saman.
- Smyrjið rjómanum yfir alla kökuna.
- Skreytið með jarðarberjum og Oreo kexkökum.
- Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram en gott er gott að setja á kökuna deginum áður.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir