Aðferð
- Setjið salsasósu og rjómaost í hrærivélarskálina og blandið þar til kekkjalaust og létt í sér.
- Saxið rauðlauk mjög smátt og dreifið í botninn á þeirri skál/fati/bakka sem verður fyrir valinu.
- Smyrjið rjómaostblöndunni yfir rauðlaukinn.
- Saxið grænmetið smátt (nema tómata) og dreifið yfir blönduna (að sjálfsögðu má nota annað grænmeti, bara það sem ykkur þykir gott).
- Skerið nokkra litla tómata til helminga og skreytið.
- Gott er að kæla nacosdýfuna aðeins áður en hennar er notið en þó ekki nauðsynlegt.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir