Aðferð
- Setjið óafhýddu hvítlauksrifin á heita pönnu og brúnið þar til þau verða mjúk.
- Takið þá hýðið af þeim.
- Á sömu pönnu brúnið chiliið.
- Setjið það svo í kalt vatn í 20 mínútur.
- Sigtið svo vatnið frá. Ristið cuminfræ, negul og piparkorn á pönnunni þar til ilmar.
- Setjið hvítlauksrifin, (elduðu og óeldaða), chili og krydd í matvinnsluvél ásamt ⅔ dl af vatni, eplasíderediki, óreganókryddi og sykri. Maukið.
- Saltið nautakjötsbitana og steikið þá í skömmtum og setjið til hliðar.
- Steikið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur.
- Bætið maukuðu sósunni saman við og látið malla í 5 mínútur.
- Setjið 1 ¼ dl vatn út í ásamt bjór, tómatapassata, jalapeno og jalapenovökva.
- Látið suðuna koma upp og setjið þá kjötið saman við.
- Látið malla á vægum hita í 1 ½ - 2 klukkutíma undir loki.
- Að þeim tíma liðnum setjið súkkulaðið út í og smakkið til með salti og pipar. Ef sósan er ekki nógu þykk er gott að láta hana malla aðeins lengur án pottloks.
- Berið fram með meðlætinu.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir