Aðferð
- Hitið ofn í 170 gráður með blæstri.
- Hrærið saman öll þurrefni.
- Stappið bananana og bætið út í þurrefnin ásamt smjöri, mjólk og vanillu. Hrærið þessu saman.
- Setjið Nutella í meðalstóra skál sem má fara í örbylgjuofn. Hitið í 30 sekúndur svo það mýkist aðeins.
- Takið 3 dl af deiginu og hrærið saman við Nutella.
- Setjið bananadeigið og nutelladeigið til skiptis í formkökuform, dragið að lokum hníf í gegnum deigið til að blanda aðeins saman, líkt og um marmaraköku væri að ræða.
- Bakið í 45-50 mínútur eða þar til bakað í gegn.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir