Aðferð
- Stillið ofninn á 180°.
- Blandið brauðteningum, olíu og beikoni saman í skál. Kryddið með svörtum pipar. Hrærið varlega saman.
- Setjið pastað í sjóðandi saltvatn og sjóðið í 6 mínútur. Bætið þá blómkálinu saman við vatnið og látið malla áfram í 2 mínútur. Takið 3 ½ dl af vatninu frá og geymið.
- Hellið pastanu og blómkálinu í sigti og látið renna vel af því.
- Hrærið saman í pottinum vatninu sem þið tókuð frá, sýrða rjómanum og ostinum. Smakkið til með salti.
- Blandið pastanu og blómkálinu varlega saman.
- Hellið í smjörsmurt eldfast form og sáldrið beikon-brauðblöndunni yfir ásamt smá auka gratínosti og timian ef vill.
- Bakið í 15-20 mínútur.
- Gott er að láta réttinn standa í 10 mínútur áður en hann er borinn fram.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir