Botn
- Bræðið smjór og setjið í matvinnsluvél ásamt Oreo kexkökum og hakkið þar til kexið er fínmalað.
- Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi, um 22 cm að stærð.
- Setjið kexblönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu niður og slétta úr því.
- Geymið í kæli á meðan þið undirbúið rest.
Fylling
- Setjið matarlímsblöðin í skál með köldu vatni og látið þau liggja í bleyti í rúmar 5 mín.
- Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri.
- Setjið Oreo kexkökurnar í matvinnsluvél og hakkið þar til þær er orðnar fínmalaðar, blandið þeim saman við skyrblönduna og hrærið.
- Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni.
- Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið er búið að leysast alveg upp.
- Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel.
- Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst.
- Takið kökuna út úr kælinum, gott er að nota heitan hníf til þess að skera meðfram köntum formsins til þess að losa kökuna.
- Smellið forminu af og setjið kökuna á disk.
Toppur
- Þeytið rjóma þar til hann stendur, sprautið rjómanum fallega á ystu brúnir kökunnar (t.d. með stút nr. 1M) eða setjið hann yfir alla kökuna.
- Skerið Oreo kexkökur gróflega niður og setjið í miðjuna á kökunni ásamt súkkulaðisírópi.
- Skreytið kökuna með Oreo kexkökum að vild.
- Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.
- Auðvelt er að frysta skyrkökur í allt að 3 mánuði.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir