Að elda ostasamloku er einfalt. Ofur einfalt. Og ef það er gert rétt er það alveg einstaklega ljúffengt. Það eru nokkur skref sem þarf að fylgja.
Almennt er það nú þannig að einfaldur matur byggir á því að maður noti góð hráefni. Og þar leikur osturinn auðvitað lykilhlutverk.
Brauðsneiðar | |
Dijonsinnep (gott að sæta með smá hlynsírópi) | |
Ferskt timjan | |
Nóg af rifnum Óðals Búra | |
Nóg af rifnum Óðals Cheddar | |
Smjör (til að smyrja og til steikingar) |
Höfundur: Ragnar Freyr Ingvarsson