Skref1
- Afþýðið baguette brauðin og skerið eftir endilöngu.
- Smyrjið góðu lagi af pestó á neðri hluta brauðsins.
- Því næst fara ostsneiðarnar á og svo skinkan. Eitt bréf á að innihalda sex stórar skinkusneiðar og því duga tvær sneiðar á hverja loku. Brjótið skinkuna saman eftir endilöngu og leggið ofan á ostsneiðarnar.
- Skerið Dala Brie í hæfilega stóra bita og skiptið niður á brauðin.
Skref2
- Lokið og grillið þar til brauðið brúnast og osturinn bráðnar(gott að klemma grillið ekki alveg niður til að koma í veg fyrir að osturinn leki af brauðinu).
- Þegar brauðið er tilbúið má leyfa hitanum aðeins að rjúka úr, taka efra lokið af og setja klettasalat á hverja loku.
- Síðan má skera hverja loku niður í minni bita.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir