Skref1
- Myljið niður hafrasúkkulaðikexið.
- Bræðið smjörið og hrærið vel saman við kexið.
- Þrýstið í botninnn á springformi.
Skref2
- Þeytið 2 ½ dl af rjómanum og setjið til hliðar.
- Þeytið egg og sykur vel saman, bætið rjómaostinum saman við og hrærið vel saman.
- Bætið loks við þeytta rjómanum.
- Setjið matarlímið í bleyti í kalt vatn.
- Bræðið Síríus Pralín súkkulaði með piparmyntu og ½ dl af rjómanum.
- Kreistið vatnið af matarlímsblöðunum og bræðið í súkkulaðiblöndunni.
- Blandið fyrst örlítið af rjómaostablöndunni saman við súkkulaðið og hellið svo restinni af ostablöndunni saman við.
- Hrærið vel saman.
- Setjið í springformið og kælið vel.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson