Skref1
- Setjið smjörpappír á bökunarplötu og stillið ofninn í 180 gráður.
Skref2
- Fletjið út pizzadeigið og skerið í jafnstóra ferninga.
Skref3
- Setjið ólífuolíu á pönnu ásamt hvítlauk, lauk, furuhnetum og spínati.
- Steikið við meðalháann hita og hrærið þar til spínatið er orðið vel steikt.
- Setjið örlítið salt og pipar.
Skref4
- Blandið mozzarellaosti og fetaosti saman í skál.
Skref5
- Setjið spínatblönduna á hvern pizzaferning fyrir sig ásamt osti.
- Lokið hverjum ferningi fyrir sig þannig að það myndist þríhyrningur. P
- ressið endana saman með gaffli.
- Mikilvægt er að loka hverjum þríhyrningi vel svo að osturninn leki ekki út inni í ofninum.
Skref6
- Hrærið eggjarauðu í skál og penslið hvern þríhyrning fyrir sig, stráið örlitlu saltin ofan á.
Skref7
- Bakið í 10-15 mínútur eða þar til þríhyrningarnir eru orðnir gullbrúnir að lit.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir