Menu
Poke skál með kjúklingi og salatosti

Poke skál með kjúklingi og salatosti

Það er alltaf gaman að gera eitthvað nýtt og ef ekki að nýta janúar til að prófa hollar uppskriftir þá veit ég ekki hvenær. Hér er á ferðinni poke skál með mínum uppáhalds hráefnum en fólki er að sjálfsögðu frjálst að nota annað grænmeti og svo má líka prufa að skipta kjúklingi út fyrir lax, rækjur eða annað sem ykkur lystir.

Innihald

4 skammtar
sushigrjón (+ salt, hrísgrjónaedik og sykur)
kjúklingabringur
teriyaki sósa með hvítlauk (og meira til að bera fram með)
edamame baunir
stórt mangó
avocado
gulrætur
lime
Dala salatostur í kryddolíu frá MS (1 krukka)
blaðlaukur, kóríander og sesamfræ til skrauts
ólífuolía
kjúklingakrydd

Skref1

  • Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka og leyfið að ná stofuhita.
  • Skerið kjúklinginn í bita og steikið upp úr ólífuolíu + kjúklingakryddi. Hellið teriyaki sósunni yfir í lokin þegar kjúklingurinn er gegnsteiktur og leyfið að hitna í gegn.
  • Það má einnig stytta sér leið og kaupa eldaðar kjúklingabringur, skera í bita og hita í olíu á pönnu, hella síðan teriyaki sósunni yfir.

Skref2

  • Gufusjóðið edamame baunirnar.
  • Rífið niður gulrætur.
  • Skerið loks mangó og avókadó í bita.

Skref3

  • Raðið saman í skál eins og ykkur lystir.
  • Hrísgrjónin eru grunnurinn og síðan er gott að hafa vel af kjúklingi.
  • Grænmeti má síðan skammta sér eftir smekk og toppurinn yfir I-ið er að setja vel af salatosti til að njóta með réttinum.
Skref 3

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir