Svampbotn
- Þeytið egg og sykur vel saman.
- Blandið saman hveiti, lyftidufti og kartöflumjöli. Hrærið vel saman.
- Hellið deiginu í þrjú jafnstór kringlótt bökunarmót (22 cm). Passið að hafa bökunarpappír undir.
- Bakið við 175°C hita í 18-20 mínútur.
Fylling
- Þeytið rjómann, skerið eplin og súkkulaðið í litla bita og blandið saman við.
Súkkulaðiganace
- Búið til súkkulaði ganache með því að setja súkkulaði og rjóma í pott og hita þar til allt hefur bráðnað.
Samsetning
- Bleytið botnana örlítið með eplasafa.
- Setjið rjómafyllinguna á milli botnana og hellið súkkulaði ganachinu yfir.
- Skreytið kökuna með súkkulaði með karamellufyllingu.
Höfundur: Hjördís Dögg Grímarsdóttir