Skref1
- Hitið ofn í 160 gráður.
- Hrærið saman öll þurrefnin.
Skref2
- Hrærið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.
- Bætið eggjum saman við og hrærið áfram.
- Hellið þurrefnum saman við smjörblönduna og hrærið gróflega.
- Setjið jógúrt og mjólk í blönduna ásamt möndludropum.
- Hrærið allt vel saman án þess að hæra deigið of mikið. Þá missir botninn léttleika.
Skref3
- Stingið í heitan ofn og bakið þar til kökuprjónn kemur hreinn út þegar honum er stungið í miðju kökunnar. Alls ekki baka kökuna of lengi svo hún verði ekki þurr. Bökunartími fer eftir því hversu þykkt deigið er í forminu sem deigið er sett í.
- Ath. að það þarf að smyrja formið sem deigið fer í svo hægt sé að ná kökunni vel úr forminu. Gera má ráð fyrir um 20 mínútum á kökuna.
- Kælið kökuna áður er glassúr er settur á hana.
Skref4
- Hrærið saman flórsykur og vatn í glassúrinn.
- Hér þarf að stilla saman magn af flórsykri og vatni, ef kremið er of þunnt skal bæta við sykri og öfugt.
- Hrærið þar til kekkjalaust en þá skulið þið setja rauða matarlitinn saman við.
- Smyrjið á kökuna sem þá ætti að vera komin á fallegan kökudisk.
- Skreytið að vild og berið fram.
Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir