Aðferð
- Steikið beikonið á pönnu og geymið.
- Stingið grillpinna í gegnum rauðlaukssneiðarnar, penslið með olíu og grillið á báðum hliðum, penslið laukinn með BBQ-sósu rétt undir lokin.
- Grillið borgarana eftir smekk, tvo á mann.
- Leggið ostinn ofan á borgarana þegar 1-2 mínútur eru eftir af steikingartímanum og látið hann bráðna örlítið.
- Hitið brauðið á sama tíma á efri grind grillsins, smyrjið ríflega af sósunni á brauðin.
- Raðið svo borgaranum saman.
- Berið fram með grilluðum kartöflubátum
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir