Bollakökur
- Stillið ofninn á 180 gráðu hita og raðið bollakökuformum ofan í bökunarform og setjið á ofnplötu.
- Hrærið smjör og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
- Bætið eggjum saman við einu í senn og hrærið vel á milli ásamt vanilludropum. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og bætið saman við deigið smátt og smátt í einu ásamt mjólkinni.
- Setjið því næst börkinn af sítrónunum ásamt safanum og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Sprautið deiginu í bollakökuformin og passið að fylla þau ekki meira en 2/3 eða um 2 msk. í hvert form.
- Bakið í 18-20 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
- Kælið kökurnar alveg áður en þið setjið krem á þær.
Sítrónukrem
- Hrærið smjörið þar til létt og ljóst.
- Blandið flórsykrinum saman við smátt og smátt í einu og hrærið vel á milli.
- Bætið mjólkinni saman við ásamt sítrónudropum og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og kremið er orðið mjúkt og slétt.
- Sprautið kreminu á hverja köku fyrir sig.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir