Aðferð
- Hitið ofn í 180 gráður. Hrærið saman smjör, sykur og sítrónubörk þar til létt og ljóst. Brjótið eggin út í og hrærið saman. Bætið þá við þurrefnum og sítrónusafa. Hrærið þar til deigið er mjúkt og kekkjalaust en alls ekki of lengi.
- Setjið í 22 cm form (fallegt að hafa það ekki stærra svo kakan nái smá hæð). Bakið í 25-35 mínútur, stingið kökuprjóni í miðju hennar og athugið hvort hann komi hreinn út. Alls ekki baka kökuna of lengi, fylgist vel með henni svo hún haldi mýkt og raka.
- Hrærið saman smjör og flórsykur í kremið. Það gæti þurft meiri flórsykur svo bætið örlitlu við í einu. Hellið sítrónusafa og vanilludropum saman við og hrærið og notið rjómann til að mýkja smjörkremið. Fræin fara saman við að síðustu. Smyrjið kremið á kalda kökuna og berið fram.
Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir