Skref1
- Setjið kanilkexið í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er orðið fínmalað.
- Bræðið smjör og hellið því saman við kexið og hrærið vel saman.
- Setjið kexblönduna í hringlaga form um 22 cm að stærð og þrýstið kexblöndunni vel niður í botninn og upp á hliðar formsins. Gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu vel niður.
- Setjið formið inn í ísskáp á meðan þið undirbúið skyrkökuna.
Skref2
- Þreytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt kanil og púðursykri. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Hellið skyrblönduni yfir kexbotninn og sléttið út með sleif.
- Skerið epli í sneiðar og raðið þeim ofan á skyrkökuna. Stráið kanil yfir eplin.
- Skerið pekanhneturnar gróflega niður og setjið ofan á eplin ásamt karamellusósunni.
- Best er að bera kökuna fljótlega fram eftir að þið hafið sett eplin ofan á. Geymið í kæli þar til kakan er borin fram.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir