Botn
- Setjið saltkringlur og púðursykur í matvinnsluvél og hakkið þar til fínmalað.
- Bræðið smjörið og blandið því saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi, um 22 cm að stærð.
- Setjið blönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta blöndunni niður og slétta úr henni.
- Geymið í kæli á meðan þið undirbúið rest.
Fylling
- Setjið matarlímsblöðin í skál með köldu vatni og látið þau liggja í bleyti í rúmar 5 mín.
- Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri.
- Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni.
- Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið er búið að leysast alveg upp.
- Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel.
- Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst.
- Takið kökuna út úr kælinum, gott er að nota heitan hníf til þess að skera meðfram köntum formsins til þess að losa kökuna.
- Smellið forminu af og setjið kökuna á disk.
Toppur
- Þeytið rjóma þar til hann stendur, blandið kakói saman við og hrærið saman með sleif.
- Sprautið rjómanum fallega á ystu brúnir kökunnar (t.d. með stút nr. 1M) eða setjið hann yfir alla kökuna.
- Skerið niður Snicers í litla bita og setjið á kökuna ásamt súkkulaðisírópi og hnetusmjöri.
- Gott er að setja hnetusmjörið í sprautupoka og sprauta því á kökuna.
- Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir