Súkkulaði bollakökur
- Hitið ofninn 175°C.
- Sigtið saman hveiti, kakó, lyftiduft, matarsóda og salt og leggið til hliðar.
- Blandið eggjum, mjólk, olíu og vanillu saman í hrærivélinni.
- Bætið þá sykrinum og öllum þurrefnunum saman við. Hrærið á lágum hraða til að byrja með en síðan á meðalhraða í um tvær mínútur eða þar til deigið er orðið slétt og fallegt.
- Blandið að lokum sjóðandi vatninu varlega saman við deigið með sleif þar til það verður slétt að nýju. Deigið á að vera þunnt.
- Leyfið deiginu að hvíla í 15 mínútur og hrærið þá aðeins upp í því að nýju.
- Fyllið ¾ hluta af bollakökuformunum með deigi og bakið þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu (ekki blautu deigi) eða í um 20 mínútur.
- Kælið bollakökurnar og útbúið kremið á meðan.
Vanillu- og jarðarberja smjörkrem
- Þeytið smjörið þar til létt og ljóst.
- Bætið flórsykrinum saman við í litlum skömmtum og blandið á lágum hraða.
- Að lokum fara vanilludroparnir og saltið saman við blönduna og kremið þeytt í nokkrar mínútur þar til létt og ljóst og skafið nokkrum sinnum niður á milli.
- Takið rúmlega 1/3 af vanillukreminu til hliðar og setjið jarðarberjamaukið saman við tæplega 2/3 af kreminu og blandið vel.
- Byrjið á því að sprauta jarðaberjakreminu í rúman hring og síðan vanillukreminu þar ofan á (t.d. með 1M frá Wilton). Þá er kökuskrauti stráð yfir og kirsuber sett á toppinn.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir