Botn
- Hitið ofninn í 180 gráður.
- Setjið smjörpappír í hringlaga form um 20 cm stærð.
- Setjið Oreo kex í matvinnsluvél og fínmalið.
- Bræðið smjör og hrærið saman við Oreo kexið.
- Setjið kexblönduna í botninn á forminu og þrýstið vel niður og upp á hliðar formsins.
- Bakið í 10 mínútur og kælið.
Fylling
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og setjið til hliðar.
- Hrærið rjómaostinn þar til hann er orðinn mjúkur og sléttur.
- Bætið sykri saman við ásamt sýrðum rjóma og hrærið vel.
- Setjið eggin saman við og hrærið vel.
- Blandið brædda súkkulaðinu saman við ostablönduna og hrærið með sleif þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
- Hellið rjómaostablöndunni ofan á Oreo kex botninn og bakið 40-45 mínútur. Ef þið notið stærra form þurfið þið styttri bökunartíma, um 25-30 mínútur. Með því að nota minna form verður kakan hærri og veglegri.
- Kakan er aðeins mjúk í miðjunni þegar þið takið hana úr ofninum. Þegar kakan kólnar fellur hún í miðjunni og myndar hálfgerða skál þar sem berin fara ofan í.
Súkkulaðihjúpur
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði, blandið sírópi og rjóma saman við og hrærið stanslaust þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg.
- Hellið því yfir kælda kökuna, dreifið úr súkkulaðinu og látið það leka örlítið niður hliðar kökunnar.
- Kælið kökuna þar til súkkulaðið hefur náð að storkna örlítið.
- Skreytið með berjum að vild.
- Geymið í kæli þar til kakan er borin fram.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir