Skref1
- Blandið salti og sykri saman í skál.
- Stráið salt- og sykurblöndunni á bakka og leggið flakið yfir með roðið niður.
- Stráið smá af blöndunni yfir laxinn og nuddið vel í fiskinn.
Skref2
- Kryddin blönduð vel saman í annarri skál og stráð svo yfir laxinn.
Skref3
- Stráið salt- og sykurblöndunni jafnt yfir.
Skref4
- Pakkið flakinu vel inn í álpappír og stingið nokkrum sinnum í álpappírinn með gaffli báðum megin.
- Geymið flakið í kæli í fati og snúið á 12 klukkutíma fresti.
Skref4
- Gerið þetta í 3 sólahringa.
- Borðið á þriðja degi eða setjið í frysti og geymið.
Graflaxasósa
- Blandið hráefnunum vel saman í skál.
- Kælið.
Höfundur: Hafdís Priscilla Magnúsdóttir