Kaka
- Bræðið smjörið.
- Setjið allt í skál og blandið með töfrasprota.
- Einnig er hægt að byrja á að þeyta egg og sykur og blandað svo öllu saman.
- Setjið í form sem búið er að smyrja með smjöri. Mitt form er um 22 cm
- Bakið í miðjum ofni á 170 g í um 15 mínútur.
Krem
- Látið smjör og rjómaost ná stofuhita.
- Þeytið smjörið vel í nokkrar mínútur og bætið við sukrin melis.
- Bætið við rjómaosti og blandið vel saman.
- Kaffi, kókos og kakó bætt við.
- Setjið kremið á kökuna og stráið yfir kókos.
Höfundur: Hafdís Priscilla Magnúsdóttir