Kaka
- Stífþeytið eggjahvítur með lyftiduftinu og setjið til hliðar.
- Rjómaostur, eggjarauður, sýrður rjómi, sukrin melis og fræ úr vanillustöng þeytt vel saman.
- Bætið eggjahvítum við með sleif og blandið vel en varlega.
- Notið smjörpappír eða bökunarpappír sem búið er að smyrja með olíu (t.d. avocado olíu) og fyllir heila ofnskúffu. Dreifið sukrin yfir pappírinn og setjið svo deigið.
- Bakið við 175 gráður í um 9-12 mínútur eða þar til gyllt.
Krem
- Þeytið saman rjómaost og sukrin melis.
- Maukið berin þegar þau eru hálfþiðnuð eða alveg þiðin og sigtið fræin frá. Bætið við skálina og þeytið saman. Í lokin er rjóma bætt út í og þeytt saman þar til kremið verður stíft.
- Dreifið kreminu á tertubotninn þegar hann er orðinn kaldur og rúllið honum upp. Gott er að nota pappírinn til að hjálpa sér að rúlla upp.
- Stráið sukrin yfir tertuna.
Höfundur: Hafdís Priscilla Magnúsdóttir