Skref1
- Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
Skref2
- Blandið púðursykrinum saman við með sleif.
Skref3
- Þeytið rjómann, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið, hann þarf ekki að standa alveg.
- Blandið honum saman við eggjarauðublönduna með sleif og hrærið vel.
Skref4
- Bætið vanilludropum saman við ásamt grófsöxuðu toblerone og hrærið þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
- Fyrir þá sem vilja nýta eggjahvíturnar í eitthvað annað er um að gera að skella í t.d. marengs. Fyrir ykkur sem ætlið ekki að nota þær í annað er hægt að stífþeyta þær og blanda þeim saman við ísblönduna.
Skref5
- Hellið ísblöndunni í kökuform eða ílát sem þolir frost.
- Hellið súkkulaðisírópinu yfir ísinn og blandið saman við með því að snúa hníf í hringi ofan í ísnum.
- Frystið í að lágmarki 5 klst.
Skref6
- Þegar þið berið ísinn fram er gaman að skeyta hann fallega með rjóma og grófsöxuðu eða heilu toblerone, einnig er gott að bjóða upp á auka súkkulaðisíróp með ísnum eða aðra heimagerða súkkulaðisósu.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir