Skúffukaka
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið ofnskúffu að innan.
- Þeytið egg og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt, eða í um 5 mínútur.
- Blandið hveiti, kakói og lyftidufti saman í skál og hrærið.
- Bætið því saman við blönduna ásamt mjólkinni og brædda smjörinu og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Skafið vel hliðarnar á skálinni inn á milli til þess að allt blandist vel.
- Hellið deiginu í ofnskúffuna og dreifið því jafnt með sleif.
- Bakið í 20 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
- Kælið kökuna áður en þið setjið smjörkremið ofan á.
Smjörkrem
- Hrærið smjörið í hrærivélinni þangað til það er orðið mjúkt og létt.
- Bætið smá og smá af flórsykrinum saman við og hrærið vel á milli.
- Bætið því næst vanilludropunum saman við og mjólkinni.
- Ef ykkur finnst kremið of þykkt bætið þið við mjólk og ef ykkur finnst það of þunnt bætið þá við flórsykri.
- Mikilvægt er að hræra kremið mjög vel þegar maður ætlar að skreyta kökur því þá losnum við við alla smjörkekkina og kremið fær fallega áferð.
- Því lengur sem þið hrærið því betra verður kremið.
- Kremið verður hvítara því lengur sem það er hrært.
- Svo er um að gera að lita það með öllum regnbogans litum.
Samsetning
- Þegar þessi kaka var skreytt var notaður sprautustútur 1M, en það er hægt að nota hann á svo marga vegu.
- Fyrst er kakan fest saman með smjörkremi, svona grunnlagi, svo er restinni af kreminu skipt í fjóra hluta og kremið litað með gel matarlitum t.d. bleikum, grænum, bláum og gulum matarlit (nauðsynlegt að nota gel liti og þeir fást t.d. í Allt í köku).
- Þegar búið er að sprauta hliðarnar á kökunni er smjörkreminu blandað saman í einn sprautupoka og restin á kökunni skreytt.
- Þannig er efri hlut kökunnar einnig skreyttur.
- Svo þar sem þetta er Trolls kaka er upplagt að vera með þar til gert glimmer sem er blásið á hliðarnar.
- Síðan er um að gera að skella nokkrum hressum Trolls köllum ofan á kökuna ásamt stjörnuljósi.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir